Höfuðstöðvar Icelandair

Tillaga marimo að nýjum höfuðstöðvum Icelandair hlaut 2.–3. verðlaun í tveggja þrepa samkeppni. Hönnunin sameinar nýja höfuðstöðvabyggingu og endurbætur á núverandi húsnæði. Úr verður sveigjanlegur vinnustaður sem endurspeglar ímynd Icelandair og ýtir undir samvinnu, nýsköpun og vellíðan starfsfólks.

Staðsetning: Hafnarfjörður

Ár: 2021

Staða: Samkeppni

Tegund: Skrifstofur

Þjónusta: Arkitektúr

Stærð: 5.000 m² nýbygging + 3.200 m² endurbætur

Verkkaupi: Icelandair

Samstarfsaðilar: Gláma-Kím, VSÓ, Örugg, Lumex