Þjónusta
marimo er arkitektastofa í Reykjavík sem sinnir arkitektúr, innanhússhönnun, skipulagsgerð, landslagshönnun og ráðgjöf. Við vinnum að fjölbreyttum verkefnum fyrir einstaklinga, fyrirtæki og opinbera aðila, allt frá fyrstu hugmynd og greiningu til hönnunar, útfærslu og eftirfylgni.
arkitektúr & hönnun
Tillögugerð
Hugmyndavinna og frumhönnun sem mótar megináherslur, rými og yfirbragð verkefnis
Byggingarhönnun
Arkitektahönnun fyrir nýbyggingar, viðbyggingar og breytingar á íbúðar-, atvinnu- og opinberu húsnæði.
Endurgerð og endurhönnun
Hönnun breytinga og endurbóta þar sem tekið er mið af karakter, sögu og framtíðarnotkun byggingar.
innanhússhönnun
Heildstæð hönnun innirýma með áherslu á rými, efni, lýsingu, notkun og upplifun.
Landslagshönnun
Hönnun útirýma þar sem byggingar, landslag, gróður og notkun mynda eina heild.
Húsgagna- & vöruhönnun
Sérhönnuð húsgögn, innréttingar og lausnir sem eru þróaðar fyrir þarfir hvers verkefnis.
Sýningarhönnun
Hönnun sýninga og sýningarrýma með áherslu á rými, frásögn, verk og upplifun gesta.
Endurbætur og viðbygging við íbúðarhús í Reykjavík þar sem ný inngrip eru mótuð í samtali við eldri byggingu, efni og umhverfi.
Skipulag
Rannsóknir & greining
Greining á staðháttum, byggð, landslagi og forsendum sem leggja grunn að skipulagshönnun.
Aðal- og deiliskipulag
Hönnun og mótun skipulags fyrir byggð, lóðir og þróunarsvæði.
Skipulagsráðgjöf
Ráðgjöf við þróun verkefna, skipulagsbreytingar og mat á möguleikum lóða og svæða.
Innanhússhönnun í skrifstofurými Alþingis, þar sem unnið var með hljóðvist, efnisval og nýjar lausnir í samtali við sögulegt samhengi hússins.
Ráðgjöf & Hugmyndavinna
Ráðgjöf á staðnum
Fagleg arkitektaráðgjöf vegna rýma, efnisvals, breytinga og framkvæmda.
Verkefnamótun
Greining á þörfum, markmiðum, möguleikum og forsendum verkefnis áður en hönnun hefst.
Hönnunar- og verkefnastjórn
Samræming og utanumhald hönnunarverkefna frá fyrstu hugmynd til framkvæmdar.
Litagleði og flísaleikur í baðrými Óskalands leikskóla.
okkar ferli
- 1. Verkefnagreining
Árangur verkefnis ræðst oft áður en hönnun hefst. Með samtölum, vettvangsskoðun og greiningu mótum við skýran skilning á markmiðum, forsendum og tækifærum verkefnisins.
- 2. hugmyndavinna & tillögugerð
Tillögugerð er lykiláfangi í hverju verkefni. Við þróum hugmyndir sem móta rými, notkun, form og megináherslur hönnunarinnar, óháð stærð eða umfangi verkefnis.
- 3. Þróun hugmyndar
Í hönnunarþróun er tillagan útfærð nánar með áherslu á rými, efni, tæknilegar lausnir og smáatriði. Þar eru helstu ákvarðanir samræmdar og lagður grunnur að framkvæmd.