Innanhússhönnun leikskólans Óskalands
Innirými Óskalands eru hönnuð út frá sjónarhorni barnsins. Náttúrulegur viður, hófstillt litapalletta, hljóðdeyfandi fletir og sérsmíðuð húsgögn mynda saman hlýlega og áþreifanlega heild. Leikurinn er ekki bundinn við leiktæki heldur fléttaður inn í arkitektúrinn sjálfan. Innbyggð húsgögn verða staðir til að klifra, fela sig, sitja og safnast saman, og lítil op og sjónlínur eru í augnhæð barnanna. Útkoman er fjölbreytt umhverfi sem styður við leik, nám og hreyfingu en líka rólegar stundir, og gefur börnunum frelsi til að nota og túlka rýmin á sinn hátt. Óskaland var tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2026 í flokknum Staður.
Staðsetning: Hveragerði, Ísland
Ár: 2023–2026
Staða: Lokið
Tegund: Leikskóli
Þjónusta: Innanhússhönnun, sérsmíðuð húsgögn
Stærð: 610 m²
Ljósmyndari: Nanne Springer
Verkkaupi: Hveragerðisbær
- HÖNNUNARVERÐLAUN ÍSLANDS 2026 · STAÐUR · TILNEFNING · ÞRJÚ EFSTU
- PREFAB HOUSE OF THE YEAR 2026, EISTLAND · BESTA OPINBERA BYGGINGIN · SIGURVEGARI


















