Leikskólinn Óskaland
Óskaland er viðbygging við samnefndan leikskóla í Hveragerði. Þar mynda arkitektúr, innanhússhönnun, sérsmíðuð húsgögn og fjölbreyttur garður heildstætt, hlýlegt og leikandi umhverfi sem tekur mið af stærð, sjónarhorni og upplifun barnanna. Verkefnið kannar hvernig arkitektúr fyrir börn getur verið leikandi án þess að verða barnalegur. Mælikvarði barnanna birtist í sjónlínum, litlum opum, innbyggðum húsgögnum og smærri rýmum, á meðan stórir gluggar tengja innirýmin við ævintýralegan garð sem hvetur til könnunar og skapandi leikja. Verkefnið sýnir jafnframt að hægt er að ná fram vandaðri, heildstæðri hönnun með einingabyggingaraðferð. Óskaland var tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2026 í flokknum Staður.
Staðsetning: Hveragerði, Ísland
Ár: 2023–2026
Staða: Lokið
Tegund: Leikskóli
Þjónusta: Arkitektúr, innanhússhönnun
Stærð: 610 m²
Ljósmyndari: Nanne Springer
Verkkaupi: Hveragerðisbær
- HÖNNUNARVERÐLAUN ÍSLANDS 2026 · STAÐUR · TILNEFNING · ÞRJÚ EFSTU
- PREFAB HOUSE OF THE YEAR 2026, EISTLAND · BESTA OPINBERA BYGGINGIN · SIGURVEGARI
















